31október

ég er hættur

Fyrir þá sem ekki hafa fattað en þá nenni ég þessu ekki... farið á myspacið (myspace/johannesjo) mitt ef þið viljið hitta mig... eða hringið bara ef ykkur langar að heira í mér sjáumst
31. október 2007 klukkan 22:27
Jóhannes Jóhannesson
Engin athugasemd
12apríl

Sonna smá yfirlit

nú þarf ég að koma nokkrum hlutum af herðum mínun
nr.1 Komin með Sóló Þögull sem gröfin
nr. 2 Keith Green er bezti krisni tónlistarmaður sem uppi hefur verið
nr. 3 fékk ekki að fara fljúga í dag útaf veðri eins og síðasta mánuðinn
nr. 4  páska fríið var skemmtinlegt.. hlé frá skóla 13 tíma vinnudagar upp á flugvelli
nr. 5 Símon Jó. það var heiður að fá skvassboltan frá þér í bakið um dagin verst hvað steindór og birgir voru rangeiðir
nr. 6 megi Jesú fá að vera mér innblástur í allt

takk fyrir og góða nótt ég blogga næst eftir < svona > langan tíma...
Guð blessi ykkur

12. apríl 2007 klukkan 02:39
Jóhannes Jóhannesson
2 athugasemdir
23desember

Spennufallið Rétt fyrir Jólin

jæja núna er um rúmur mánuður síðan ég skrifaði síðast og ætla ég að fara svona hratt yfir sögu hvað ég hef gert síðasta mánuðinn...
UUMM síðasta mánuðinn hef ég klárað öll flugskólaprófin með 8,752 í meðaleinkun náð öllum 22 einingunum í FB, tekið öll flugmálastjóraprófin, farið til eyja til að lýsa tónleika, dreift jólagjöfum frá Icelandair til starfsmanna og svo sit ég hérna uppá flugvelli að bíða eftir að geta farið að vinna.... en nú er allt ófært með flugi og allir hér í hlaðdeildinni vita varla hvað þeir eiga að gera þangað til að veðrið fer eikkað að skána... ég er búin að sitja hérna í tölvunni síðan klukkan 7 í morgun og klukkan er alveg að ganaga 10!!!!.... jæja ég nenni samt ekki að skrifa eikkað meira svo pís out

skrifið eikkað skemtinlegt í athugasemdir til að reina fá mig til að skrifa meira
kv Jóhannes
23. desember 2006 klukkan 15:29
Jóhannes Jóhannesson
3 athugasemdir
31október

Allt á fullu og engin tími til að blogga

sry hef ekki tíma til að blogga er í þessum asnalegu Flugmálastjórnarprófum núna á fimmtudaginn og mánudaginn!!!
31. október 2006 klukkan 07:39
Jóhannes Jóhannesson
4 athugasemdir
25október

Kallin orðin 18!!!

Nú er kallin loksins stigin yfir stóra þröskuldin hann er orðin 18. Fann alveg þegar ég vaknaði í morgun hvað líkamin þroskaðist um ár. Afmælisdagurinn var alveg ágætur byrjaði á því að fara í skólan fór svo beint úr honum til tansa á síðasta séns til að geta fengið endurgreitt frá skattinum en ef þið vitið það ekki en þá hættir ríkið að borga 75% af tansa eftir 18ára aldur. sem betur fer var ekkert major að en þarf kanski að láta taka endajaxlanna úr mér eftir nokkur ár... allavega eftir það dreif ég mig í pianotíma en kom þangað næstum alveg óundirbúin út af þessum stupid lokaprófum í fluginu tók eitt í gær og fer svo í annað á morgunn... eftir tíman fór ég bara heim að læra og lærði til sonna 6 tók mér svo smá pásu áður en ég fór í flugskólan... þegar ég var komin í flugskólan áttaði ég mig á því að ég var með VITLAUSAR BÆKUR í 2 skiptið á sonna 2 vikum en það gerði ekki mikið til vegna þess að kennarinn mætti aldrei á svæðiðUllandi veit að vísu ekki afhverju...  við nemendurnir spjölluðum bara saman í sonna hálftíma og fórum svo bara...En þegar ég fór hafði ég mikilvæga ákvörðun að gera upp með mé.. ætti ég að fara heim að læra undir lokaprófið þar til klukkan 10 eða ætti ég bara að fara eikkert í heimsókn og auðvitað valdi ég samviskusamlega að fara heim (til sindra) og læra mannleg samskipti UllandiGlottandi... það var mjög gaman töluðum mikið um opinberunabókina og þær kenningar sem margir hafa um hana..(nerd)...svo klukkan 10 fórum við á american style til að fagna 18 ára afmælinu og komu þar fleirri t.d. Doddi, Eiríkur, Eyþór, Halldór, Lillíja og svo auðvitað sindri vorum þar í sonna 1,5 tíma þar til við fórum til Eiríks og horfðum á mynd... var að koma heim núna og þarf að fara sofa svo ég hafi orku í að taka þetta ELSKU*EGA PRÓF á morgun!!!


kær kveðja Jóhannes endilega kommentið eða skrifið í gestabókina

25. október 2006 klukkan 07:20
Jóhannes Jóhannesson
9 athugasemdir
21október

Afmælið búið og nóg að gera

jæjæ nú er kallinn búin að halda uppá afmælið ásamt 2 öðrum þeim Vigdísi Marianne Glad og Hafliða Guðjónssyni. afmælið heppnaðist nokkuð vel og er kallin mjög ánægður. get að vísu ekki talað mikið núna ÚT AF LEIÐINDA LOKAPRÓFUM Í FLUGSKÓLANUM heil tvö lokapróf í næstu viku ég er að verða geðveikur en já nóg með það setti inn eina mynd af okkur afmælisbörnunum í albuminu nokkrar myndir.
njótið vel og endilega kvittið !!! God Zpeed
21. október 2006 klukkan 22:47
Jóhannes Jóhannesson
2 athugasemdir
01október

Þökkum Guði Fyrir BELTI

Vá ég var að koma úr fyrsta verklega flugtímanum mínum... fór í hann klukkan 15:35 og var komin til baka heilu að höldnu klukkan 1630.. en það er kanski ekkert sérstak við það nema að þegar við vorum að fluga ætli við höfum ekki verið svona 5 km suðaustan við álverið þegar að kennarinn minn er að sína mér hvað gerist ef maður hreifir stélið hratt í aðra áttina og þegar hann gerði það breittist þyngdarpunkturinn í vélinni sem gerði það að verkum að ýttist aðeins utaní vinstri hliðina sem sagt hurðin og hún OPNAÐISTHissa AAAAAAAAA við vorum í 2000 fetum sem sagt 320 metra hæð&THORN;&ouml;gull sem gr&ouml;fin... ekki gaman að detta þar niður. en sem beturfer skapaði Guð eikkern mann sem að fann upp á beltinu.. það var ekkert annað að gera en bara að sleppa stírinu og reina að loka hurðinniBrosandi
en ég verð að fara Doddi bíður niðri eftir að ég komi niður við erum nefnilega nokkrir stákarnir að fara í bíó

jámm sjáumst og endilega skrifið í gestabókina...eða kommentið á etta hjá mér.
01. október 2006 klukkan 00:10
Jóhannes Jóhannesson
1 athugasemd
25september

bara heil súpa af hlutum sem ég er búin að gera

jæjæ nú er aðfaranótt mánudagsins 25. september og er ég að fara undirbúa mig fyrir svefnin enda mikill dagur á morgun, heilir 14 tímar í skóla fyrir utan eina klukkutíma pásu. það er nú orðið svolítið langt síðan ég bloggaði og biðst ég velvirðingar á því. síðustu tvær helgar hafa verið alveg ótrúlega skemmtinlegar tala nú ekki um vestmannaeyjaferðina sem við nokkrir krakkar aðalega úr fíló samt einn strákur úr kristkirkjunni fórum í.

þar var gert margt skemtinleg t.d. tekið skemtinlega vafasamar myndir sum ykkar vitið hvað ég er að tala um en hin verðið bara að ímynda ykkur, svo fórum við að rúnta í bílnum hans sævars sem er svona svartur bens, og tókum upp flassið á myndavélinni minni og bláabolin hans birgis og þóttumst vera að stoppa bílaHl&aelig;jandi.... sem sagt við lögðum bílnum útí kant biðum svo eftir því að eitthver keirði framhjá og svo þegar að sá bíll kom brunuðum við á eftri honum og ég var á fullu að blikka bláa flassinu sem líktist lögregluljósi... en þrátt fyrir að hafa verið á svona gegt löggulegum bíl og með blátt flass þá stoppaði engin fyrir okkur og við komumst eiginlega að því afhverju það var deginum eftir... sem sagt við blikkuðum held ég 3 bíla 2 af þeim þekktu bílin hans sævars og vissu að þetta væri bara eikkað djók og svo hinn, það var strákur sem var ekki með bílpróf og skeit næstum því á sig þegar að hann sá ljósið svo hann beigði inn í eikkerja innkeirslu og við nentum ekki að elta hann... en hann sagði pabba sínum frá þessu og pabbi hans varð brjálaður Hissa hehe ..

En já þessa helgi hefur maður gert mjög lítið bara verið með vinum mínum aðalega verið leigt mynd og borðað sukk og jú að vísu vorum við að leika okkur að reina taka upp lag en það mistókst hrikalega þannig að ég nenni ekki að tala um það.

Nú er flugskólin byrjaður og er ég að fara inní 3 vikuna. þetta er alveg gegt skemtinlegt nám og lærir maður gegt mikið þarna... doddi hætti í flugnáminu þannig að nú er ég bara einn eða svo til, bróðir minn er líka í því en hann er 23 árum eldri en ég þannig að það er ekki hægt að telja hann með. siglingafræðikennarinn minn er sveittasti kennari sem ég hef á æfinni séð... í byrjun kenslustundar er hann alveg venjulegur svo þegar að líða fer á kenslustundina byrja að kom svita blettir undir hendurnar á honum svo kemur svona lítill punktur framaná hann á milli brjóstanna eða réttara sagt geirvartanna þetta er ekki kvenkyns kennari. svo á endanum er komin svitalína á milli handakrikana og punktsins í miðjuni og svo er kragin alveg rennandi blautur... en já það er bara fyndið, truflar mann að vísu smá en aðallega fyndið...

já nú þarf ég að kveðja ykkur að sinni endilega kíkið á myndirnar mínar er búin að setja nokkrar á netið og svo skrifið í gestabókina eða setjið inn athugasemdir.

takk fyrir að lesa þetta og afsakir mál- og stafsetningavillurnar 

Með kveðju frá Jóhannesi. 
 
25. september 2006 klukkan 07:04
Jóhannes Jóhannesson
1 athugasemd
31ágúst

Kallinn loksins komin með Blogg

jæjæ nú er kallinn loksins komin með blogg og mun hann að reina eins og hann getur til að halda henni við.

Skólin er nú búin að standa yfir í rúma viku og er maður byrjaður að finna fyrir því að þurfa að vakna á morgnanna. Ég er í 22 einingum og er þessvega næstum alltaf í skólanum til klukkan 17:45 allavega mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. ekki mun það batna því þann 11. september mun ég byrja í flugskólanum Geirfugl og verð ég í honum ÖLL vilrk kvöld frá 19-22l.... er fólk ekki að djóka í mér ég á ekki eftir að lifa þessa önn af!!!Öskrandi
en nóg með það tölum um það sem hefur drifið á daga mína undanfarið...

Í gær var ég heima hjá mér að chilla bíða eftir klukkunni þegar að ég fæ símhringingu og er það ekki bróðir pabba sem er að hringja í mig.. hann sagðist vera fara upp á sandgerði að fljúga smá og spurði hvort ég mundi vilja fara vel... ég hugsaði mig um í soldin tíma sonna 0,5 sekondubrot og kallin sagði auðvitað já... við fórum saman upp á sandgerði og fórum í 50 mínútna vélflug á TF-SAA sem er demon vél sonna hálfpartin vélflugvél og hálfpartin sviflugvél.. svo þegar við lentum þá bauð hann mér að prófa svifflug og auðvitað skellti kallinn sér í það og það var magnað!!!! maður flaug alveg við fjallið og vá maður fann hvernig vélin var geðveikt þæginlegt að stjórna henni og tala nú ekki um útsínið bjúti full...aðvísu það fyndnasta við svifflugið er að eiginlega aðal mælitækið er spotti sem hangir á vélinni..hehe en ég mun láta myndir af fluginu seinna..

jámm takk fyrir að lesa þetta nonsens og jámm gleðinlegt haustÓákveðinn



31. ágúst 2006 klukkan 07:37
Jóhannes Jóhannesson
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Hvað á maður að gera nánustu framtíð???(eftir stúdent)

Spurning?

Hvað geriru ef þú ert að fljúga um miðj nótt og það drefst á hreiflinum og þú getur ekki startað honum aftur svo að þú ferð að undirbúa nauðlendingaflug og kveikir á lendingarljósunum en sérð þá að það er fjall rétt fyir framan þig?

svar: þú slekkur á lendingarljósunum :P

Teljari

Innskráningar kubbur